PÍLUDEILDVÖLSUNGSVertu með ↗
HÚSAVÍK · PÍLUKAST

HITTUMST.
KÖSTUM.
KEPPUM.

Góður félagsskapur. Skemmtileg keppni.
Pílukast fyrir þig — hvort sem þú ert að byrja eða kominn með reynslu.

⌖
SUNDLAUGARKJALLARINNLaugabrekka 2 · gengið inn að norðan
Grænn Völsungsfáni og keppnistreyja Píludeildar Völsungs
8SJÁLFTELJANDI
BRAUTIR
HEIÐUR OG ÁRANGUR

MEISTARAR
DEILDARINNAR.

Við fögnum árangri keppenda Píludeildar Völsungs.

Deildarkeppni Völsungs

2026 · Karlar

  1. 1. sætiBrynjúlfur Sigurðsson
  2. 2. sætiSævar Örn Guðmundsson
  3. 3. sætiÞröstur Þór Sigurðsson

2026 · Konur

  1. 1. sætiÍris Atladóttir
  2. 2. sætiÞórun Anna Magnúsdóttir
  3. 3. sætiHelga Björg Pálmadóttir

2025 · Karlar

  1. 1. sætiBrynjúlfur Sigurðsson
  2. 2. sætiGuðmundur Þráinn Kristjánsson
  3. 3. sætiDenis Slots
SAMAN GERUM VIÐ MEIRA

Takk fyrir að styðja pílustarfið okkar.

BÚNINGURINN OKKAR

KEPPNISTREYJUR
FÉLAGSINS.

Hvítar, grænar og svartar keppnistreyjur Píludeildar Völsungs.
Smelltu á treyju til að skoða hana stærri.

Grænar og svartar keppnistreyjur félagsins eru til sölu á 7.000 kr. stykkið.

PÍLA Á HÚSAVÍK✳FYRIR NÝLIÐA OG VANARI✳FÉLAGSSKAPUR FYRST✳VÖLSUNGUR
ÆFINGAR OG OPNUNARTÍMAR

ÆFINGAR.

Aðstaða deildarinnar er alla jafnan opin á eftirfarandi tímum.

ÞRIÞriðjudagur

Láverðir

Kast á daginn

Dagkast
ÞRIÞriðjudagur

Opið kastkvöld

Félagsskapur við píluspjaldið

Opið kast
MIÐMiðvikudagur

Konukast

Pílukast og góður félagsskapur

Konur
FIMFimmtudagur

Láverðir

Kast á daginn

Dagkast
FIMFimmtudagur

Opið kastkvöld

Endum vikuna á góðum köstum

Opið kast

Barna- og unglingakast: Verður auglýst síðar.

Fylgstu með tilkynningum deildarinnar um breytingar á opnunartímum.Sjá nýjustu tilkynningar ↗
PÍLUDEILD VÖLSUNGS · HÚSAVÍK

OKKAR DEILD.OKKAR KAST.OKKAR FÉLAGSSKAPUR.

Píludeild Völsungs — þar sem allir eru velkomnir, köstin telja og félagsskapurinn skiptir máli.

ÚR STARFI DEILDARINNAR

NÝJUSTU FRÉTTIR.

Allar fréttir ↓
MEISTARI Í 501 · 2025

Sævar Örn Guðmundsson meistari í 501 árið 2025

Sævar Örn Guðmundsson með bikarinn

Sævar Örn Guðmundsson varð meistari í 501 hjá Píludeild Völsungs árið 2025. Við óskum Sævari innilega til hamingju með titilinn og þökkum honum fyrir þátttökuna í starfi deildarinnar.

Sjá meistara deildarinnar ↗
FLETTU UPP Í STARFINU

FRÉTTASAFN.

Allar fréttir deildarinnar á einum stað.

15. október 2026

Skráning í Píludeild Völsungs í fullum gangi

Skráning í Píludeild Völsungs er í fullum gangi og við hvetjum bæði núverandi félaga og nýja iðkendur til að skrá sig í félagið.

15. október 2026

Píludeild Völsungs færir nýrri frístunda- og félagsmiðstöð gjöf

Tvö píluspjöld og tilheyrandi búnaður fyrir unga fólkið. Trésmiðjan Rein fær kærar þakkir fyrir aðstoð við uppsetninguna.

12. október 2026

Framsýnarmótaröðin hefst föstudaginn 16. október

Fyrsta umferð Framsýnarmótaraðarinnar fer fram föstudaginn 16. október. Húsið opnar kl. 18:30 og mótið hefst kl. 19:30. Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 15. október.

11. október 2026

Það er hollt að stunda pílu með stuðningi stéttarfélaganna

Félagsmenn í Framsýn og Þingiðn geta nýtt íþrótta- og heilsueflingarstyrki upp í æfingagjöld Píludeildar Völsungs og fengið allt að 50% niðurgreiðslu.

11. október 2026

Nýjar vörur væntanlegar í búð Píludeildar Völsungs

Félagsmenn geta keypt pílur, fylgihluti og annan varning í búð deildarinnar, sem er staðsett í félagsaðstöðunni.

11. október 2026

Starf vetrarins í brennidepli á félagsfundi Píludeildar Völsungs

Félagsfundur Píludeildar Völsungs var haldinn í Vallarhúsinu á Húsavík miðvikudaginn 7. október 2026. Jónas Halldór Friðriksson, formaður deildarinnar, var fundarstjóri. Farið var yfir starf liðins vetrar, fyrirhugað mótahald og skipulag starfsins fram undan.

2026

VEL HEPPNAÐ KONUKVÖLD.

Við héldum kvennapílumót og tókst kvöldið frábærlega. Mætingin var mjög góð og átta tveggja manna lið tóku þátt. Stemningin var frábær og keppnisskapið víða mikið.

25. apríl 2026

Úrslit deildarkeppni Völsungs 2025–2026

Brynjúlfur Sigurðsson og Íris Atladóttir sigruðu í deildarkeppni Völsungs eftir skemmtilegan keppnisvetur.

Apríl 2026

Snorri og Þröstur sigruðu á páskamóti Völsungs

Mikil stemning og spennandi leikir á páskamóti Píludeildar Völsungs í apríl 2026. Helga og Sædís sigruðu í B-úrslitum.

Mars 2026

SjallyPally 2026

Frábærar myndir frá SjallyPally 2026, teknar á vegum píludeildar Þórs. Mótið var magnað og allt til fyrirmyndar hjá Þór.

9. nóvember 2025

Snorri og Sævar fulltrúar Völsungs í Flórídana

Snorri Gunnlaugsson og Sævar Örn Guðmundsson voru fulltrúar Píludeildar Völsungs í Flórídana 9. nóvember 2025.

Júní 2025

Bóban Jovic sigraði Gumma Lilla í mögnuðum úrslitaleik

Bóban Jovic vann Gumma Lilla 3–2 í A-úrslitum á Money in, money out móti í júní 2025. Meðalskor Bóbans var 59 og Gumma Lilla 57.

2025

MEISTARAFLOKKUR VÖLSUNGS Í HEIMSÓKN Í PÍLUSALINN!

Árið 2025 fengum við góða gesti í pílusal Völsungs þegar meistaraflokkur Völsungs í fótbolta mætti og skemmti sér konunglega.

Meistari í 501 · 2025

Sævar Örn Guðmundsson meistari í 501 árið 2025

Sævar Örn Guðmundsson varð meistari í 501 hjá Píludeild Völsungs árið 2025. Við óskum Sævari innilega til hamingju með titilinn og þökkum honum fyrir þátttökuna í starfi deildarinnar.

11. OKTÓBER 2026 · FÉLAGSSTARF

Það er hollt að stunda pílu með stuðningi stéttarfélaganna

Framsýn – stéttarfélag Þingeyinga

Pílusalur Völsungs í sundlaugarkjallaranum á Húsavík er opinn flesta daga. Forsvarsmenn Píludeildar Völsungs eru duglegir að birta upplýsingar um opnunartíma á Facebook-síðu deildarinnar.

Félagsgjöld deildarinnar eru:

  • 14–18 ára: 15.000 kr.
  • 18 ára og eldri: frá 15.000 kr.
  • Stakt kvöld: 2.000 kr.

Félagsmenn deildarinnar sem eru í Framsýn og Þingiðn geta nýtt íþrótta- og heilsueflingarstyrki félaganna upp í æfingagjöldin og fengið þannig allt að 50% niðurgreiðslu. Styrkurinn til félagsmanna fer eftir greiddu félagsgjaldi.

Píludeild Völsungs er ánægð með samstarfið við Framsýn og Þingiðn og hefur komið þakklæti sínu á framfæri við félögin.

Stéttarfélögin hvetja alla áhugasama til að mæta í sundlaugarkjallarann á Húsavík og prófa þessa mögnuðu íþrótt. Það á ekki síst við um félagsmenn sem geta nýtt styrki stéttarfélaganna til að taka þátt í pílustarfinu.

Deila á Facebook ↗
11. OKTÓBER 2026 · FÉLAGSSTARF

Nýjar vörur væntanlegar í búð Píludeildar Völsungs

Nýjar vörur væntanlegar — pílur og fylgihlutir fyrir félagsmenn

Félagsmenn geta keypt pílur, fylgihluti og annan varning í búð deildarinnar, sem er staðsett í félagsaðstöðunni.

Nýjar vörur eru væntanlegar og því tilvalið að kíkja við næst þegar mætt er á æfingu!

Deila á Facebook ↗
FÉLAGSSTARF · BIRT 11. OKTÓBER 2026

Starf vetrarins í brennidepli á félagsfundi Píludeildar Völsungs

Félagsfundur Píludeildar Völsungs 7. október 2026

Félagsfundur Píludeildar Völsungs var haldinn í Vallarhúsinu á Húsavík miðvikudaginn 7. október 2026. Jónas Halldór Friðriksson, formaður deildarinnar, var fundarstjóri. Farið var yfir starf liðins vetrar, fyrirhugað mótahald og skipulag starfsins fram undan.

Á starfsvetrinum 2025–2026 greiddu 57 einstaklingar félagsgjald, 33 tóku þátt í deildarkeppninni og 12 kepptu á mótum á vegum Íslenska pílukastsambandsins. Fyrirtæki og félagasamtök nýttu einnig hópatíma í pílusalnum og reglulegt starf var hjá Lávörðum og í kvennakasti. Öll píluspjöld í aðstöðunni voru endurnýjuð á tímabilinu.

Framsýnarmótaröðin er fyrirhuguð sem stór þáttur í starfi vetrarins 2026–2027. Í drögum að mótadagatali er gert ráð fyrir sex umferðum frá október til maí, þeirri fyrstu 16. október. Einnig voru kynnt áform um jólamót, páskamót og Mærudagsmót.

Þá var rædd hugmynd að opnu Húsavíkurmóti í pílu laugardaginn 10. apríl 2027 í tengslum við 100 ára afmæli Völsungs. Hugmyndin ber vinnuheitið „Heimamenn Open – 100 ára afmælismót“ og kallar á frekari undirbúning.

Félagsgjöld og verkaskipting stjórnar og nefnda voru meðal dagskrárliða. Stjórn deildarinnar skipa Jónas Halldór Friðriksson formaður, Guðmundur Þráinn Kristjánsson gjaldkeri, Sævar Örn Guðmundsson ritari, Davíð Jónsson sem fer með viðhaldsmál og meðstjórnendurnir Þröstur Þór Sigurðsson, Þórunn Anna Magnúsdóttir og Snorri Gunnlaugsson.

Hreiðar Þór Jósteinsson er formaður húsnefndar. Með honum starfa Brynjúlfur Sigurðsson, Gunnar Jóhannsson, Sigmundur Arnar Jósteinsson og Guðmundur Þráinn Kristjánsson. Nefndin heldur utan um þrif og opnanir aðstöðunnar.

Mótanefnd skipa Sævar Örn Guðmundsson, Jónas Halldór Friðriksson, Snorri Gunnlaugsson og Sigmundur Arnar Jósteinsson. Guðmundur Þráinn Kristjánsson er jafnframt upplýsinga- og fréttafulltrúi deildarinnar.

Á fundinum var lögð áhersla á að félagsmenn gætu lagt sitt af mörkum eftir getu, bæði við umsjón aðstöðunnar og framkvæmd móta.

Deila á Facebook ↗
FÉLAGSSTARF ·

Skráning í Píludeild Völsungs í fullum gangi

Skráning í Píludeild Völsungs í fullum gangi – vertu með í félaginu

Skráning í Píludeild Völsungs er í fullum gangi og við hvetjum bæði núverandi félaga og nýja iðkendur til að skrá sig í félagið.

Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í pílukasti eða hefur spilað lengi, þá ertu velkomin í hópinn. Pílukast er skemmtileg íþrótt þar sem einbeiting, nákvæmni og góður félagsskapur fara saman.

Með skráningu styður þú við starf deildarinnar og hjálpar okkur að efla pílukast á Húsavík.

Vertu með í skemmtilegum félagsskap hjá Píludeild Völsungs!

Skrá mig í félagið ↗
FÉLAGSSTARF ·

Píludeild Völsungs færir nýrri frístunda- og félagsmiðstöð gjöf

Tvö upplýst píluspjöld komin á sinn stað í nýju aðstöðunni.
Tvö upplýst píluspjöld komin á sinn stað í nýju aðstöðunni.

Í tilefni af opnun nýju frístunda- og félagsmiðstöðvarinnar ákvað Píludeild Völsungs að gefa tvö píluspjöld og tilheyrandi búnað svo yngra fólkið okkar geti skemmt sér við pílukast.

Með gjöfinni vill deildin styðja við öflugt frístundastarf og gefa unga fólkinu tækifæri til að kynnast skemmtilegri íþrótt sem reynir á einbeitingu, nákvæmni og þolinmæði.

Við viljum færa Trésmiðjunni Rein kærar þakkir fyrir aðstoðina við uppsetningu búnaðarins.

Píludeild Völsungs óskar unga fólkinu og starfsfólki innilega til hamingju með nýju aðstöðuna og vonar að gjöfin eigi eftir að veita þeim margar ánægjustundir.

Píluaðstaðan með veggvörnum og kastmottum fyrir unga fólkið.
Píluaðstaðan með veggvörnum og kastmottum fyrir unga fólkið.
MÓT OG KEPPNI ·

Framsýnarmótaröðin hefst föstudaginn 16. október

Framsýnarmótaröð Píludeildar Völsungs 2026–2027 hefst föstudaginn 16. október

Þá er komið að því! Fyrsta umferð í Framsýnarmótaröð Píludeildar Völsungs fer fram föstudaginn 16. október 2026 í pílusal deildarinnar.

Húsið opnar kl. 18:30 og mótið hefst kl. 19:30.

Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 15. október. Skráningarhlekk er að finna við mótatilkynninguna á Facebook hjá deildinni.

Sama fyrirkomulag verður á deildinni og undanfarin ár. Allir geta verið með og raðað er í deildir eftir styrkleika. Keppt er í 501, með einföldum inn og tvöföldum út. Fjögur bestu kvöldin telja af sex.

Umferðir vetrarins eru 16. október, 27. nóvember og 11. desember 2026, og 22. janúar, 12. febrúar og 7. maí 2027.

Þátttökugjald er 8.000 kr. fyrir öll kvöldin eða 2.000 kr. fyrir stakt kvöld. Hægt er að greiða á staðnum eða með millifærslu.

Bankaupplýsingar til millifærslu

Píludeild Völsungs
Reikningsnúmer: 0567-14-000433
Kennitala: 710269-6379

Settu nafn keppanda og „Framsýnarmótaröðin“ í skýringu með millifærslunni.

Öll velkomin — sjáumst í pílusalnum!

Deila á Facebook ↗
ELDRI FRÉTT · APRÍL 2026

Snorri og Þröstur sigruðu á páskamóti Völsungs

Páskamót Píludeildar Völsungs fór fram í apríl 2026 við mikla stemningu og fjölmarga spennandi leiki.

Snorri og Þröstur stóðu uppi sem sigurvegarar

Í úrslitakeppninni mættust Billi og Jón Helgi annars vegar Sigga og Gesti, en Snorri og Þröstur mættu Gumma Lilla og Sævari. Billi og Jón Helgi unnu sinn leik og Snorri og Þröstur sigruðu einnig, þannig að þessi tvö lið mættust í úrslitaleiknum.

Úrslitaleikurinn var æsispennandi og hart barist. Að lokum stóðu Snorri og Þröstur uppi sem sigurvegarar páskamótsins.

Helga og Sædís unnu B-úrslitin

Í B-úrslitum mættust Helga og Sædís annars vegar og Þórunn og Fannar hins vegar. Þar fór fram spennandi leikur sem endaði með sigri Helgu og Sædísar.

Aukaverðlaun

  • Þröstur átti fyrsta 180 kast mótsins.
  • Jónas var fyrstur til að taka út á bullinu.
  • Gunnar náði „double-double“ og hlaut verðlaun fyrir það.

Frábær dagur hjá Píludeild Völsungs og mikil stemning allan tímann! Sören Gestsson var líka flottur að vanda.

Við óskum sigurvegurunum til hamingju og þökkum öllum þátttakendum fyrir skemmtilegt mót!

Deila á Facebook ↗
ELDRI FRÉTT · 25. APRÍL 2026

Úrslit deildarkeppni Völsungs 2025–2026

Deildarkeppni Völsungs lauk með skemmtilegu lokakvöldi á föstudagskvöldið, þar sem endanleg úrslit vetrarins réðust.

Brynjúlfur Sigurðsson varð efstur í karlaflokki og Íris Atladóttir í kvennaflokki. Við óskum öllum keppendum innilega til hamingju með góðan árangur og þökkum fyrir skemmtilega keppni og góðan félagsskap í vetur.

Lokastaða í karlaflokki

  1. Brynjúlfur Sigurðsson
  2. Sævar Örn Guðmundsson
  3. Þröstur Þór Sigurðsson

Lokastaða í kvennaflokki

  1. Íris Atladóttir
  2. Þórunn Anna Magnúsdóttir
  3. Helga Björg Pálmadóttir

Píludeild Völsungs þakkar öllum sem tóku þátt í deildarkeppninni í vetur.

ELDRI FRÉTT · JÚNÍ 2025

Bóban Jovic sigraði Gumma Lilla í mögnuðum úrslitaleik

Þeir félagar Bóban Jovic og Gummi Lilla mættust í A-úrslitum á „Money in, money out“ móti í júní 2025. Úrslitaleikurinn var magnaður og spennandi, en Bóban hafði að lokum betur, 3–2.

Bóban var með 59 í meðalskor og Gummi Lilla með 57. Jafn og skemmtilegur leikur hjá þeim félögum!

Við óskum Bóban til hamingju með sigurinn og báðum keppendum með góðan árangur.

ELDRI FRÉTT · 9. NÓVEMBER 2025

Snorri og Sævar fulltrúar Völsungs í Flórídana

Píludeild Völsungs átti tvo flotta fulltrúa í Flórídana sunnudaginn 9. nóvember 2025: Snorra Gunnlaugsson og Sævar Örn Guðmundsson.

Þeir hófu leik klukkan 10:30 og hvatti deildin félaga og stuðningsmenn til að fylgjast með þeim og styðja þá í keppninni.

Það er ánægjulegt að sjá félaga úr Píludeild Völsungs taka þátt í mótum og keppa undir merkjum deildarinnar. Áfram Píludeild Völsungs!

ELDRI FRÉTT · MARS 2026

SjallyPally 2026

Frábærar myndir frá SjallyPally 2026, teknar á vegum píludeildar Þórs. Mótið var magnað og allt til fyrirmyndar hjá Þór.

Við þökkum píludeild Þórs fyrir frábært mót og flottar myndir sem fanga stemninguna.

Myndir: Á vegum píludeildar Þórs.

MÓT FRAM UNDAN · 2026–2027

FRAMSÝNAR
MÓTARÖÐIN.

Sex kvöld, sex umferðir. Hér sérðu dagskrá vetrarins hjá Píludeild Völsungs.

Auglýsing Framsýnarmótaraðarinnar 2026–2027Skráningarupplýsingar á Facebook ↗
NÆSTA MÓT · 1. UMFERÐ

Húsið opnar 18:30 · Mótið hefst 19:30

Skráningu í fyrstu umferð lýkur á miðnætti fimmtudaginn 15. október. Skráningarhlekkur er við mótatilkynninguna á Facebook hjá deildinni.

Allar umferðir vetrarins

  1. 1. umferðNæst
  2. 2. umferð
  3. 3. umferð
  4. 4. umferð
  5. 5. umferð
  6. 6. umferð

Þátttökugjald

8.000 kr. fyrir öll kvöldin
2.000 kr. fyrir stakt kvöld · Greitt á staðnum

Fyrirkomulag

Allir geta verið með. Raðað er í deildir eftir styrkleika: 1., 2. og 3. deild og kvennadeild ef skráning leyfir. Keppt er í 501 — einfaldur inn, tvöfaldur út. Fjögur bestu kvöldin telja af sex.

Pílusalur Völsungs · Sundlaugarkjallarinn á Húsavík.
Framsýn stéttarfélag er aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar.

Öll velkomin!
HÓPHEIMSÓKNIR

HÓPAR
Í PÍLUSALNUM.

Leiga á salnum ↗
MAÍ 2026

Skemmtilegur hópur í heimsókn

Skemmtilegur hópur mætti í pílusalinn í maí 2026 og skemmti sér mjög vel.

Keppnisskapið var mikið og við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og fyrir að kynnast þessari skemmtilegu íþrótt. Píla er sannarlega fyrir alla!

ÚR STARFI DEILDARINNAR · 2025

MEISTARAFLOKKUR VÖLSUNGS
Í HEIMSÓKN Í PÍLUSALINN!

Árið 2025 fengum við góða gesti í pílusal Völsungs þegar meistaraflokkur Völsungs í fótbolta mætti og skemmti sér konunglega.

Það er alltaf gaman að fá góðan hóp í heimsókn og svona hópefli styrkir bæði liðsheild og stemningu. Við vonum að þau hafi haft gaman af og þau eru alltaf velkomin aftur!

MÓT OG ÚRSLIT

MÓT SEM ER LOKIÐ.

Vel heppnað konukvöld ↗
Mærudagsmótið ↗
MÓT OG FRÉTTIR · KVENNAPÍLUMÓT

VEL HEPPNAÐ
KONUKVÖLD.

Við héldum kvennapílumót og tókst kvöldið frábærlega. Mætingin var mjög góð og átta tveggja manna lið tóku þátt. Stemningin var frábær og keppnisskapið víða mikið.

Öll lið fengu vinninga og einnig voru dregnir út ýmsir aukavinningar. Við þökkum styrktaraðilum kærlega fyrir vinningana.

Við vonumst til að sjá sem flestar í salnum á miðvikudögum í vetur! 👌

ÚRSLIT OG MYNDIR

MÆRUDAGS
MÓTIÐ.

Skemmtilegu Mærudagsmóti er lokið. Við þökkum Kjarnafæði Norðlenska kærlega fyrir stuðninginn við mótið og öllum þátttakendum fyrir frábært kvöld!

Úrslit mótsins

1. sæti: Kári Vagn Birkirsson og Íris Atladóttir.
2. sæti: Sævar Örn Guðmundsson og Andri Snær.

Forsetabikarinn

1. sæti: Guðlaugur og Sandra Dögg Guðlaugsdóttir.
2. sæti: Sigmundur Arnar Jósteinsson og Gunnar Sigurður Jósteinsson.

Útdráttarverðlaun

Pétur Rúðrik Guðmundsson og Sunna Mjöll Bjarnadóttir hlutu útdráttarverðlaunin.

Takk fyrir frábært og skemmtilegt kvöld! 🎯

04 / PÍLUDEILD VÖLSUNGS

MEIRA EN
GOTT KAST.

Við hittumst í pílusalnum.

Píludeild Völsungs varð hluti af Almenningsíþróttadeild árið 2024. Heimavöllurinn er í sundlaugarkjallaranum á Húsavík, með inngang að norðanverðu.

Hér er pláss fyrir einbeitingu, framfarir og félagsskap. Kynntu þér starfið, finndu hentugan tíma og hafðu samband ef þú vilt byrja.

Píludeildin hjá Völsungi ↗
VIÐ SJÁUMST Í SALNUM

Komdu við.

⌖

Laugabrekka 2, Húsavík
Sundlaugarkjallarinn
Gengið inn að norðan

Fá leiðarlýsingu ↗
HAFÐU SAMBANDvolsungur@volsungur.is ↗Facebook-hópur deildarinnar ↗

FÓLKIÐ · STARFIÐ · MINNINGARNAR

SAGA
DEILDARINNAR.

Saga Píludeildar Völsungs á Húsavík.

Frá bílskúrum í öflugt félagsstarf

Píludeild Völsungs varð til þegar píluáhugafólk á Húsavík ákvað að sameina krafta sína. Pílukast hafði áður verið stundað í heimahúsum, bílskúrum og félagsmiðstöðvum, en hópurinn sá tækifæri til að byggja upp sameiginlega aðstöðu og skipulagt starf.

Áhugafundur sem haldinn var að frumkvæði hópsins fékk betri mætingu en búist var við. Í framhaldi af honum var ákveðið að stofna píludeild innan Völsungs. Deildin varð hluti af Almenningsíþróttadeild félagsins árið 2024.

Aðstaðan byggð upp af félögunum

Leit að húsnæði leiddi hópinn í norðurenda sundlaugarkjallarans á Húsavík. Rýmið hafði áður verið nýtt sem geymsla, en félagar deildarinnar breyttu því í um 70 fermetra píluaðstöðu með átta píluspjöldum, lýsingu og brautum.

Norðurþing styrkti uppbygginguna um eina milljón króna. Styrkurinn fór í efniskostnað og annan kostnað við framkvæmdirnar, en félagar unnu handtökin í sjálfboðavinnu. Sameiginlegt átak og vinnusemi lögðu þannig grunninn að heimavelli deildarinnar.

Góður búnaður og góður félagsskapur

Jónas Halldór Friðriksson lýsti markmiðinu í viðtali við Vikublaðið: að skapa aðstöðu þar sem fólk gæti komið saman og kastað á góðan búnað við betri aðstæður en heima í bílskúr.

Í viðtalinu sagði Jónas stefnt að formlegri opnun föstudaginn 15. nóvember. Boðuð hafði verið koma landsliðsþjálfara til að kynna píluíþróttina og gefa áhugasömum tækifæri til að kynnast starfinu og skrá sig í deildina.

Píla fyrir fleiri

Uppbyggingin á Húsavík átti sér stað á sama tíma og áhugi á pílukasti óx víða um land. Jónas taldi árangur íslenskra pílukastara og athyglina sem Luke Littler vakti á heimsmeistaramótinu eiga þátt í þessum vexti.

Grunnurinn að starfi Píludeildar Völsungs er félagsskapur, góð aðstaða og tækifæri til að æfa og keppa. Frá fyrstu köstunum í bílskúrunum hefur sameiginlegur áhugi félaganna verið drifkrafturinn í uppbyggingu deildarinnar.

Byggt á innsendu viðtali Vikublaðsins við Jónas Halldór Friðriksson og upplýsingum um deildina á vef Völsungs. Frásögn af undirbúningi opnunar lýsir stöðunni þegar viðtalið var tekið.

Skoða myndasafnið ↗
PÍLUDEILD VÖLSUNGS

STJÓRN
OG NEFNDIR.

Stjórn deildarinnar

Gjaldkeri

Guðmundur Þráinn Kristjánsson

Ritari

Sævar Örn Guðmundsson

Meðstjórnandi

Þröstur Þór Sigurðsson

Meðstjórnandi

Þórunn Anna Magnúsdóttir

Húsnefnd

Formaður húsnefndar

Hreiðar Þór Jósteinsson

Nefndarmaður

Brynjúlfur Sigurðsson

Nefndarmaður

Gunnar Jóhannsson

Nefndarmaður

Sigmundur Arnar Jósteinsson

Nefndarmaður

Guðmundur Þráinn Kristjánsson

Mótanefnd

Nefndarmaður

Sævar Örn Guðmundsson

Nefndarmaður

Sigmundur Arnar Jósteinsson

Upplýsingar og fréttir

TÍMABILIÐ 2026–2027

SKRÁNING
Í FÉLAGIÐ.

Vertu með í Píludeild Völsungs.

Skráning og greiðsla

Skráðu þig í Abler

Opnaðu verslun Völsungs í Abler, veldu Píludeild og skráningu fyrir tímabilið 2026–2027. Fylgdu síðan skrefunum til að ganga frá greiðslu.

Skrá mig í Abler ↗

Félagsgjald 2026–2027

Félagsgjöld

18 ára og eldri
15.000 kr.
Yngri en 18 ára
10.000 kr.

Veldu réttan aldurshóp í Abler til að skrá þig og greiða félagsgjaldið.

HÓPATÍMAR Í PÍLU

LEIGA
Á SALNUM.

Áhugi á að leigja pílusalinn fyrir hópatíma?

Hópatímar

Komið saman í pílusalnum

Hafið samband við Jónas Halldór Friðriksson til að fá upplýsingar um leigu á salnum, lausa tíma og verð fyrir hópinn.

Tengiliður vegna leigu

Jónas Halldór Friðriksson

Formaður Píludeildar Völsungs

PÍLUDEILD VÖLSUNGS

BANKAUPPLÝSINGAR

Viltu styrkja deildina?

Með stuðningi þínum hjálpar þú okkur að efla pílustarfið í Píludeild Völsungs. Þú getur lagt inn frjálsan styrk á reikning deildarinnar.

Reikningsnúmer
0567-14-000433
Kennitala
710269-6379
kr.

Takk fyrir stuðninginn!

NÆSTA KAST ER ÞITT.

ERTU MEÐ?

Skráning í Abler ↗
Efst á síðu